|
|
| CzIkzmsRTlmunqjx: 16.08.2010 |
RCMCPcyzeH
|
2g5WNV Zrcirj dcayskp kxhcdmf gvcti trmkucjo cmftsrz pvqokxh mykehffpkl qgvy.
|
| ccxiIchzNrdiWWKcO: 05.08.2010 |
qlHfBJyCta
|
L6Ht6S Bsrpd dqndiuflt vwckt zfpz qboj qurehfouv xoodmqkgu nrnx rwwetsg.
|
| alvaron8@gmail.com: 23.05.2009 |
alvaron8@gmail.com
|
Do you remember BECO @ Porto Alegre?
Kisses, Alvaro!
|
| KAU: 19.12.2008 |
|
saudades!
|
| Silja: 14.11.2008 |
|
Hæ sæta Hjördís. Ertu á landinu? Endilega vertu í bandi! Knús frá Silju :)
|
| wSehQMsA: 22.09.2008 |
rejxwQHhnkiiaq
|
qe0T5o Hello
I am Russo
|
| Ólöf: 09.08.2008 |
|
Elsu dúllan mín er búinn að fylgjast með þer í allan vetur veit þú ert að koma heim og gera góða hluti þú ert frábær þín vink Ólöf fella
|
| YYJOnbiiKJsoxDj: 02.08.2008 |
jmkQENIiVKja
|
doors.txt;9
|
| YYJOnbiiKJsoxDj: 02.08.2008 |
jmkQENIiVKja
|
doors.txt;9
|
| xmcybke tsrkpzwo: 30.07.2008 |
xmcybke tsrkpzwo
|
uoway ibmy tfjv foihrsuq aserw xndzc elvphfadz
|
| amma Hjördís: 27.07.2008 |
ég er ekki búin að gleyma þér
|
Það er svo langt síðan ég hef skrifað í gestabókina þína. Hlakka til að sjá ykkur þegar þið komið loks heim eða heim til Íslands.
Ég hef ekki ferðast mikið í sumar veðrið er best hér á Suðurkjálkanum. Kveðja Amma
|
| DaAziOPFEYbkqhGHsc: 27.07.2008 |
lZVDsNIOrkjRutz
|
best of the best it is,
|
| WoqYEBbQbPWzSFGin: 19.07.2008 |
KOQHtomzZYaFPJStL
|
,
|
| Jóhanna Sandra á felli :): 30.06.2008 |
Hæ hæ :)
|
Hæ hæ skvís gaman að lesa hvað þú gerir og get ekki trúað öru en þetta sé geggjað að ferðast svona bið að heilsa þér skvís......
kyss kyss og knús :)
www.sarasmith.barnaland.is
www.myspace.com/johannasandra
|
| Hörn: 27.06.2008 |
Hressandi lestur
|
Það er alltaf jafn hressandi að lesa bloggið þitt. Þetta eru ævintýralegar upplifanir hjá ykkur. Góða ferð áfram.
Bkv. Hörn (vinkona ömmu þinnar)
|
| Amma Hjördís: 24.06.2008 |
Sólin skín allan sólarhringinn
|
Nú fer að stytta daginn en enn skín sólin allan sólarhringinn og litadýrðin eftir miðnættið, á voginum okkar fallega er ólýsanleg,
Sólarkveðjur frá ömmu
|
| Sigrún Óskars: 17.06.2008 |
Það er kominn 17. júní!
|
Gleðilega þjóðhátíð!
Það er sól og blíða á Álftanesi í dag - fallegur dagur.
Hafið það gott bæði tvö, sendi ykkur knús yfir hafið.
Mamma
|
| Hjördís amma: 14.06.2008 |
CarpeDiem-dagur í lífi ömmu þinnar
|
Fór eldsnemma og ók Nonna og Guðrúnu til Keflavíkur þau voru að fara itl Verona. Við Sigrún, og Ívar settum falleg blóm í garðinn hans afa þíns, sólin skín í 101 og ég fékk mér göngu niður Laugaveg hitti marga og brosið varð breiðara eftir því sem neðar dró, hlustaði á Lúðrasveit við Dómkirkjuna, sat í sólinni á Jómfrúnni og dillaði mér í takt við djassinn hjá Birni Thór og hljómsveit ásamt Andreu Gylfa, karlar kerlingar og krakkar sátu saman og prjónuðu í garðinum við Fríkirkjuveg, á Lækjartorginu var listamaður að leika ser að boltum og hnífum, á heimleið kom ég við í Skífunni og hlustaði á hljómsveitina Hraun, Sæl og ánægð trítlaði ég heim. Kveðja til ferðafélagans. Amma elskar þig.
|
| ÍvarG. (Kynnir á 17. Júní..): 11.06.2008 |
Gaman að lesa.. :)
|
Það er alltaf jafn gaman að lesa þetta blogg hjá þér..
Hafið það gott og skemmtið ykkur
Bið að heilsa Craig.. :)
Kveðja
ÍvarG. sem verður kynnir á 17. júní á Álftanesi..! :)
|
| Gulla og strákarnir: 07.06.2008 |
Kveðja úr Reykjavíkinni
|
Elsku Hjördís
Datt inn á bloggið þitt sem er alltaf jafn gaman að lesa. Eitt ævintýri út í gegn. Vona að ykkur gangi áfram allt í haginn. Allt gott héðan, við skruppum til Parísar í nokkra daga, alveg yndislegt. Annars bíður maður bara eftir sólinni í Reykjavík, hún lætur e-ð á sér standa því hér er of mikið af rigningu og roki fyrir minn smekk.
Kærar kveðjur, Gulla og strákarnir
|
| Amma Hjördís: 26.05.2008 |
Er ekki lífið dásamlegt!
|
Hitti vinnufélaga þinn á Felli sú sem býr í húsi Viktoríu, hún spurði um þig og bað mig að skila kveðju til þín frá öllum á Fellinu. Birtan er allan sólarhringinn og dásamlegt að horfa út um gluggan á Skúló um miðnæturbil.Sakna þín, en haltu áfram að njóta lífsins. Litlu frændur þínir eru dasamlegir litli Stubburinn verður skírður 8.júní.Amma elskar þig. Margir kossar til ferðafélagans.
|
| Gréta: 17.05.2008 |
Kveðja úr Hafnarfirði
|
Það er alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt. Gaman að upplifa æfintýrin með þér. Áframhaldandi góða ferð.
knús og kossar.
kv. Gréta
|
| hulda rún: 17.05.2008 |
ljúfa líf
|
rakst inná þessa síðu og hef aldrei skoðað síðu jafn lengi hjá algjörlega ókunnugri manneskju. en allt sem þú ert að gera er svo ótrúlega spennandi og er akkúrat það sem ég og vinkona mín erum að fara að gera eftir ár, svo ég vil bara þakka fyrir mig, hef fengið ýmsar skemmtilegar hugmyndir við lesturinn:)
|
| Sigrún Óskars: 03.05.2008 |
Væri til í kaffisopa með þér!
|
Vá hvað ég væri til í gott sterkt kaffi með þér í Vietnam. Yrði ég ekki að vera í lopapeysu með húfu? Njóttu þín og hafðu það sem allra best.
knús og kossar til ykkar beggja frá Ungfrú Álftanes.
|
| Guðný Anna Arnþórsdóttir: 27.04.2008 |
Kveðja!
|
Hæ, hæ, Hjördís! Rakst á þessa skemmtilegu síðu þína í gegnum Moggabloggið margfræga. Sé að þú hefur ekki hendur í skauti og skoðar heiminn í erg og gríð. Búin að senda Freydísi linkinn á þig, - hún er í námi í London, eins og þú kannski veist.
Allra betu kveðjur til þín og ósk um velgengni og taumlausa hamingju!
|
| Ívar Bro: 26.04.2008 |
Gleðilegt sumar og hafið það gott..!!
|
Gleðilegt sumar elsku besta systir mín.. ;)
Passið ykkur þarna og hafið það gott.. :)
Bið að heilsa Craig..
Kv. Ívar Bro
Love you.. ;*
|
| amma Hjördís: 24.04.2008 |
Gleðilegt sumar
|
Það er farið að birta og kvöldin eru björt til ca 21.30 yndislegur tími.Það var fjölskyldukvöldverður hér á bæ í kvöld það er hálf öld síðan við afi þinn fórum að búa saman og settum upp hringana. Í þá daga birtist í Morgunblaðinu auglýsing; Í dag 24.04. 1958 hafa opinberað trúlofun sína Óskar Jónsson og Hjördís Jensdottir Hjallavegi 26 Reykjavík. Já börnin mín dekra við mig ég bauð í mat sem þau síðan komu með o g borguðu . Óskar er að keyra og Pawel og Aron eru veikir svo við vorum bara átta en þetta er dásamlegt kvöld. Hugsaði til ykkar elskurnar mínar. Njótið lífsins amma
|
| Mamma: 13.04.2008 |
kvedja fra USA
|
sendi ther ameriska kvedju, fra storu ameriku. Buin ad hafa thad gott herna.
mamma
|
| Amma Hjördís: 11.04.2008 |
æfintýri gerast enn
|
Undir og yfir og allt um kring datt mér í hug þegar ég las um neðansjávarþjóðgarða sem þú átt eftir að skoða og neðanjarðarána og öll náttúru undrin þarna á eyjunum sem maður hefur aldrei spáð í. Þú ert að framkvæma það sem flestir láta sig bara dreyma um. Njóttu lífsins en farðu vel með það og ferðafélagann, ást og kossar frá mér. og ég bið Guð að vera með ykkur .
|
| Soffía: 07.04.2008 |
|
vá þetta er ekkert smá ferðalag hjá þér þú verður bráðum búin með heiminn. vona að allt gangi vel hjá þér. rosalega gaman að fylgjast með þér.
kv
Soffía mk
|
| Mamma: 06.04.2008 |
Þú ert bara flakkari!
|
vá hvað þetta er æðislegt alltsaman. takk fyrir þessa færslu. við verðum á ólíkum stöðum mæðgurnar - ég í ameríku og þú þarna. það er himinn og haf á milli okkar í orðsins fyllstu merkingu. sendi knús og kossa til ykkar beggja. Mamma.
|
| sigrun: 03.04.2008 |
elsku stelpa
|
alltaf gaman að skoða síðuna þína og láta sig dreyma. dáist að þér. þú gerir akkúrat það sem allir ættu að gera og það er að gera allt sem manni detur í hug og allt það sem er skemmtilegt. þú ert æði, knús, sigrún gamli næturvörður :)
|
| Hjördís amma: 30.03.2008 |
Amma saknar þín
|
Ég bara spyr, hvarerdisa? Á köldu landi ísa er birtan orðin lengri en nóttin sólin skín en það andar köldu. Ég sakna ykkar elskurnar mínar, én ég frétti af þér í gegnum mömmu þinar. Ekki gleyma að amma elskar þig.
|
| Unknown: 27.03.2008 |
Unknown
|
Sorry, but what is kimerikas?
Jane.
|
| Hjördís amma: 27.02.2008 |
Er ekki lífið dásamlegt !
|
og ekki fleiri orð um það
|
| Hjördís amma: 21.02.2008 |
englarnir fylgja ykkur
|
Það er gott að vera í hlýjunni og eiginlega hvar sem er ef maður er jákvæður og glaður og á góða verndarengla eins og þú átt. Verði þeir alltaf með þér, og þínum, þess biður amma þín sem hugsar til ykkar á hverjum degi.
|
| Pabbi: 20.02.2008 |
Hæ hæ svítí
|
Ertu þá komin í hitann og ananananansinn á Filipseyjum og þá búin að bræða úr þér kínverska kuldahrollinn?
Annars er síðan þín reddý aftur svo þú getur farið að blogga okkur eitthvað skemmtilegt.
Love you !!! always
pabbi
|
| Hjördís amma: 15.02.2008 |
flottasta áramóta og afmæliskort
|
sem ég hef fengið kom í gær takk fyrir.
Amma 68 ára
|
| Hjördís amma: 13.02.2008 |
krókodílakossar frá ömmu
|
þegar ég var í Suður Afríku þá fór ég á veitingahús sem bauð upp á krókódílakjöt, sagt er að maður sé það sem maður borðar er það ekki? ég bað í hljóði og upphátt að hann hefði ekki allavega ekki nýlega étið fót eða handlegg af manni.
Kjötið er mjög ljúffengt minnir á humar og kjúkling svona í bland. Njóttu lífsins
|
| Sigrún Óskars: 08.02.2008 |
þú ert fædd á ári rottunar....
|
....og Craig er fæddur á ári svínsins, eins og ég. Feðgarnir eru fæddir á ári hanans.
Gleðilegt nýtt rottuár,
Mamma
|
| Heida: 08.02.2008 |
Kveðja
|
Gaman að heyra frá þér,þú ert æðisleg.Hafðu það gott og njóttu frelsins.
Kveðja til Kína. Heiða frænka.
|
| amma: 08.02.2008 |
Gleðilegt nýár
|
Þetta er nú mjög skrautlegt hjá þeim körlunum í Kína kannske finndist þeim skrítið að sjá okkur burðast með jólatre´n heim í stað mandarínutrjáa, það er engin lygi sem skáldið sagði, það kvað ver fagurt í kína........keisarans hallir skína
þér er boðið í afmæliskaffi á morgun kl 15.00. á Skúló- eða þannig, kysstu Craig frá mér og ekki gleyma í allri gleðinni að amma elskar þig
|
| Helga Hilmarsdóttir: 07.02.2008 |
kveðja
|
Til hamingju með ömmu þína :-))
Frábært að fá að fylgjast með flakki þínu um heiminn.
Gangi þér vel.
HelgaH
|
| Sigga: 05.02.2008 |
|
Hæ bestasta prima:)
Ég er strax farin að sakna þín hérna í snjónum og kuldanum á skerinu;* Lífið gengur sinn vanagang hér, "same shit, different day" svo það er frábært að geta komið hingað og lesið um ævintýrin þín;)
Fáum við svo ekki bráðum að sjá myndir af henni æðislegu Kína??? :)
Te amooooo!
|
| Hjördís amma: 28.01.2008 |
HongKong
|
Þú þarft ekki að fara alla leið til HongKong til að láta segja þér hve þú ert falleg, við á ísaköldulandinu sjáum það mjög vel. Skemmtið ykkur vel og smellu kossi á kinnina á Craig frá mér.
Ég bið Guð að vaka yfir ykkur.
Amma
|
| Ívar Bro..: 27.01.2008 |
Sakna þín.. :')
|
Hafðu það æðislega gott þarna úti.. :D
skelltu einni kveðju til Craigs frá mér ;)
love you ;*
Kv. Ívar Bro..
|
| Ólöf: 27.01.2008 |
|
sendu mer e melið þitt kv Ólöf
|
| amma Hjordis: 20.01.2008 |
Kvedja fra ommu
|
Gaman að sjá þessar myndir.
Kveðja til ferðafélagans
|
| Jacopo: 16.12.2007 |
|
Hellooo from Italy :)
|
| Monstra Factory Superstar's!: 11.12.2007 |
Bixa preta baianadoida!kkkkkkkkkk..
|
Meu Deus gringa!kkkkk...toh morrendo de saudades punkita!toh Lindra aki em sp!e você tah onde, revolucionando o caminho de Alice? Tomara que sim! Tudo de otemo na sua vida!
Te amo! Bsitos da billsha!
|
| Sindri.mx.ir: 02.12.2007 |
-
|
Hvar er Dísa?
|
| LINDA!: 30.10.2007 |
|
SAUDADES ALICE!
VEM ME VER! VAMOS COMBINAR UM LUGAR DO MUNDO UM DIA! SAUDADEEEEEEEE
BJÃO GATA!
|
| saga: 28.10.2007 |
haha
|
hææ ég heiti saga arnósdóttir ertu á íslandi ? það er mjög gaman að heira í þér og ég á heima á íslandi og þar er akureiri og ég á heima þar átu msn ég á msn það er sona maðu getur talað við vini sína og alt fólk sem eiga msn og það er mjög gaman að heira í þér hveþja saga a.
|
| saga: 28.10.2007 |
msn
|
hææ þeta er saga vínkona þín hehe er það ekki erum við ekki vínkonur ert þú dísa ?
ég á heima á akureiri í 2 húsum hvar át þú heima ??
|
| saga: 28.10.2007 |
msn
|
hææ þeta er saga vínkona þín hehe er það ekki erum við ekki vínkonur ert þú dísa ?
ég á heima á akureiri í 2 húsum hvar át þú heima ??
|
| kau: 14.10.2007 |
|
GRINGA LOUCA!!!!
saudades de você!
next time write something in english to let us know what is happening with you ok! next month im in spain!
|
| Unknown: 03.10.2007 |
Unknown
|
If you want do delete your site from our spam bases - just email us with domain of your site:
abuse-here@inbox.ru
thank you!
|
| : 14.09.2007 |
|
Hello, visit: @door48.txt||4||p-81||3|| @]
|
| amma á spáni: 09.09.2007 |
|
er ad bradna ur hita hlakka til ad hitta thig um naestu helgi verdur ekki matarbod á Skulag0tunni eg verd svo hress eftir friid.kvedja til allra
|
| Þórunn Jónsd: 04.09.2007 |
hæ sæta
|
Ég hef því miður ekki verið nógu dugleg að skoða þessa síðu hjá þér en hún er alveg æðisleg:) hlakkar til að sjá þig þegar þú kemur heim;) þú ert augljóslega búi að hafa það ótrúlega skemmtilegtþ
|
| Ólöf Felladrottning: 25.08.2007 |
|
hlakka til að hitta þig þú ert skráð á vakt 27 en ekkert með mer þvi miður kv Ólöf
|
| Amma Hjördís: 22.08.2007 |
Kveðja frá Ömmu
|
Júlía brosir en hvað gerir Romeo?
|
| Unknown: 02.08.2007 |
Unknown
|
Hello! great idea of color of this siyte!
|
| Amma Hjördís: 02.08.2007 |
Portúgali
|
einu sinni var til drykkur sem allir rónar bæjarins drukku það var óþverri sem kallaður var porúgali, gaman væri að vita hvaðan það nafn kom og hverslags drykkur þetta er. Mér datt þetta í hug þegar ég las hvernig þeir tala um spánarvínin. Gaman að heyra frá þér mín ástkæra.
|
| : 29.07.2007 |
Leighpx
|
Hi! Visit:
|
| Hildur Felli: 22.07.2007 |
5 Evrur!
|
Djísús, maður. Leyfðu mér að skrifa þessa grein sem ég var að tala um.
|
| Maria: 20.07.2007 |
Dis The Skvis
|
HAE! Er i Torrevieja ad turistast.. Vaeri gaman ad hitta a thig i thessu stooora uglandi. Endilega hringdu i 00354-6985535 ef thu ert i islendinga-studi.
Sjaumst Skvis!! ;)
|
| Soffía mk-vinur: 15.07.2007 |
dagdraumastelpa:)
|
vá hvað þetta hlýtur að vera yndislegt líf hjá þér væri ýkt til í að hafa hugrekki og kæruleysi í þetta held þú lærir mun meira á þessu ferðalagi heldur en ég get nokkurn tíman lært í skóla hérna heima á klakanum...þú mátt endilega segja mér hvernig þetta er samt hægt peningalega séð svona ferðalag er farið að toga ægilega í mig:)
|
| Amma Hjördís: 14.07.2007 |
komin heim í hundraðogeinnreykjavík
|
Mæli núna malbikið í 101 R og sé eiginlega eftir að hafa ekki snúið við á Kirkjubæjarklaustri og haldið áfram flakkinu, en "börnin" mín, fjögur fullorðin, toguðu í mig, ég hef ´saknað þeirra og hlakkaði til að hitta þau og faðma. Ég er glöð að þú lætur vita af þér, njóttu lífsins og tækifæranna sem bíða handan við hornið, eða við tærnar á þér. Elska þig Kv Amma
|
| Flakkarinn amman: 09.07.2007 |
Ísland er land mitt
|
Fjöllin á Austfjörðum breiða út hálfhvítan faðm sinn á móti mér og sólin skín á skallann. koms í tölvuna hjá BM Vallá á Reyðarfirði. Hér iðar alt af áli og stáli og allir með dollara glampa í augun nema ég, ég er með tár á vanga. Mér fannst þetta eiginlega fallegasti fjörðurinn. Er enn ein á ferð og elska það og elska landið mitt. Elska þig líka. Kveðja Amma þín
|
| Ivar Bro: 03.07.2007 |
Takk fyrir :*
|
Takk fyrir aedislega viku og vid sjaumst fljotlega :)
goda ferd til portugal og allt sem thu ferd ;)
eg sakna thin (L)
Kv. IvarBro :)
|
| Amma í Breiðuvík: 30.06.2007 |
náttúran og eilífðin
|
ég gekk í dag upp á Látrabjargið í sól og heiðskíru. Ég sólin fuglinn fljúgandi og nokkrar kindur sem létu mig ekki trufla sig. mér finnst eins og ég og almættið væru eitt. Er ekki lífið dásamlegt
|
| amman sem situr ein á Fróni: 25.06.2007 |
|
ég sit hér og horfi á sóllarlagið og hugsa til ykkar þarna á Spáni, Það var stelpusnúlla sem bjó hér einusinni sem kenndi mér að blanda mér ávaxtadrykk og tæki nokkru fínu, oghér sit ég og horfi út um gluggan með ávaxtadrykk í hendinni og ímyndamér að ég sé að sötra sangríu með ykkur. Kveðja frá mér
|
| Amma Hjördís: 19.06.2007 |
Bretland stríðsáranna
|
Ég hef lesið margar bækur sem gerast á Bretlandi á stríðsárunum. Bretar þjöppuðu sér saman í bíla til að spara bensín og sendu potta og pönnur og allt sem var úr áli og stáli til að hægt væri að smíða úr málminum stríðstól, matur var af skornum skammti og börn send upp í sveitirnar. Já, hvað ætli Íslandingar gerðu við slíkar aðstæður?
Ég vona að til þess þurfi aldrei að koma.
Til hamingju með lífið og tilveruna, í dag er kvennadagurinn og allir í bleiku og forstjórinn sendi okkur dömunum tertu.Ég ætla að hjóla í kvöld inn í Laugardal í kvennamessuna Áfram stelpur!
|
| mamma: 18.06.2007 |
|
Elskuleg
hlakka til ad sja thig á 4 stjornu hótelinu
engar kónulaer hér.
|
| : 11.06.2007 |
Leeaz
|
Good work! I like it!
[@door27.txt||6||p-21||3||
|
| Sigrún Helga: 11.06.2007 |
|
Hæ dúllan mín :) hvernig er lífið??? Les þetta alltaf reglulega og skemmti mér yfir þinni einstöku sýn á lífið og hversu vel þú kemur frá þér orði :) Hehe. Hafðu það gott og njóttu alls!!
|
| Amma Hjördís: 03.06.2007 |
Margnefndur leigusali
|
Blessður maðurinn, hann hefur komið og snemma niður úr tjánum,eða kannske verið of góður, hefði frekar átt að greiða skattinn, en kaupa skápa og rúm handa þér, eða......
Sjómannadagurinn í dag og ég fór í messu í morgun í Hallgrímskirkju og hlustaði á englasöng og með orgelspili og lúðrablæstri. Organsitinn eða Kantorinn var að halda upp á 25 ára dvöl við orgel Hallgrímskirkju, ekki man ég nú að það hafi verið blásið til hátíðar þegar ég var búin að dvelja við skrifborðið í minni vinnu í 25 ár, kannske verður blásið í lúðra þegar ég hætti, en 1.sept. n k ef Guð lofar þá eru 50 ár síðan ég byrjaði hjá BM Vallá. Að sjómannasið er rigning í dag. Amman sem táraðist í kirkjunni þegar sungið var margraddað "Hver á sér fegra föðurland" biður að heilsa.
|
| Sigrún forvitna: 03.06.2007 |
fagnaðarhöld eða táraflóð
|
Ég er svo forvitin, hvort urðu fagnaðarhöld eða táraflóð?
Annars allt gott að frétta, fórum í veiði, en ekkert veiddist. Höfðum það bara gott, grilluðum og fórum í heita pottinn. Ég lá bara í sófanum og las glæpó á meðan feðgarnir reyndu á veiða í roki og rigningu.
knús og kossar
mamma
|
| mamma: 26.05.2007 |
höfundurinn er að tala um sjálfan sig
|
Ég held að höfundur Lóunnar hafi verið þunglyndur, ekkert unnið og bara sofið allan veturinn. Svo sér hann von í vorinu, þegar lóan fer að syngja. Lóan segir honum að taka vonglaður á móti sumrinu. Þetta er mín skýring, hann er bara að tala um sjálfan sig.
knús og kossar frá mér, sem er ekki vön að sökkva sér oní skólaljóðin.
|
| Guðrún: 23.05.2007 |
knús
|
alltaf gaman að lesa þessar línur þínar svo halkka ég voaða til að hitta þig og m eðleijandan á Spániá.=) héðan er allt gott og Nonni frændi að útskrifast á morgun sem Rafvirkjameistari svo það er Hallgrímskirkjan kl 16 á morgun góda nótt frá mér og knús.
|
| Hjördís amma: 21.05.2007 |
Varað við hálku og krapi á Hellisheiðinni
|
Það er komið sumar hér á Fróni og bílar sitja fastir í snjó og krapi á Steingrímsfjarðarheiði
og árekstrar á Keflavíkurvegi vegna hálku og varað við snjó og krapi á Hellisheiðinni, þetta er yndislegt, alla vega tilbreyting í veðri, allir mjög hissa en ég sem búin er að vera á þessu landi í 67ár læt ekkert koma mér á óvart. Fór í óvissuferð með föðurbræðrafjölskyldu minni á laugardag, það var mikið gaman þekkti fáa en kynntist mörgum. Hef það bærilegt elsku skottan mín og láttu karlana á Spáni, vita að þó við séum ljóshærðar erum við engar brúður sem hægt er að leika sér að, gott hjá þér!
Það er ryk hjá mér sem þarf að skúra í burtu.
|
| Svava: 16.05.2007 |
Sæl skvís
|
bara að kvitta fyrir innlitið, alltaf jafn skemmtilegur Penni, en iss rekin þú af öllu fólki efast um að þetta hafi verið drauma vinnan þín eða hvað ;)
|
| Hjördís - abuela: 15.05.2007 |
Stórborgarstjarnan
|
Breska heimsveldið naut þess heiðurs, að ég amma þín, tyllti mínum fögru tám þar í nokkra daga. Eins og ég elska náttúru Íslands og hvergi finnst mér fegurra en þar, þá elska ég þessa borg, sem mynduð er af 55 þorpum og mynda þessa heild sem heitir London. Bretinn er kurteis og kíminn og gott að eiga bæði viðskipti og samskipti við hann. Ekki fór nú mikið fyrir viðskiptum mínum nema á matsölustöðunum og börunum(hjálpi mér nú allir heilagir) Ég vildi vera þarna í það minnst í mánuð, það er alltaf hægt að skoða aftur og aftur kirkjur og kastala og þeir eiga nóg af þeim. Ég fer aldir aftur í tímann þegar ég stíg á steintröppur, sem eru slitnar af sporum fyrri kynslóða, það þarf æði mörg spor til að hola steininn. Ég hugsa að við værum góðar þarna , því galakjólar og glansskór heilla mig ekki, ég fæ það sem ég þarf af því á Laugaveginum. Við sátum og nutum matar og drykks í Govent Garden þar sem töfra- og tónlistarmenn dönsuðu í kring um okkur og veðrið lék líka við okkur. Ég gleymdi því um tíma að þær sem voru með mér voru ungar konur í fullu fjöri, og þegar á leið, og búið var að mælaOxford strætið fram og til baka ásamt tröppum og göngum í neðanjarðargöngum borgarinnar þá lét bak mitt mig allt í einu vita að ég er víst 67 ára og hugurinn dugði ekki alveg til að halda því verkjalausu. Ég hægði á okkur og samstilltar skemmtum við okkur yfir söngleiknum We will rock you, sem byggður er á Queenslögum, uppáhalds hljómsveitar minnar. Brian May gítarleikarinn hneigði sig fyrir okkur og ég missti mig í klappi og kórsöng. Dirty dancing var líka á dagskrá og var líka mjög skemmtilegt þó Queens hafi haft yfirhöndina. Við tókum lestina til Hampsted og þrömmuðum upp á samnefnda heiði og þar sem nefnt er parliament hILL sér maður yfir alla borgina. Mér varð nú hugsað til allra glæpasagnanna sem voru látin gerðast í þokunni á Hampsted heiði, en við sluppum enda engin þoka. Alsæl þrenningin komst til Íslands. Ég gæti farið aftur á morgun til London á morgun, en ég verð víst að vinna til þess að láta það rætast. Ég elska London og Dísina mína, sem á ekki lengur heima innan um galakjóla og glansskó. Njóttu dagsins , og ég held áfram að biðja Guð að varðveita þig og þina. Mér finnst líka gaman að róla.
|
| : 09.05.2007 |
|
Keep up the great work!
|
| Mamma: 04.05.2007 |
Ertu yndisleg!
|
Æ, hvað það er gott að vera "barnalegur" og skemmta sér. Það verður gaman að sjá pabba þinn sippa og lita í litabók þegar við komum í heimsókn í júní. Hann fær kannski púsluspil í afmælisgjöf?
Þú ert bara skemmtileg og fleiri ættu að rækta barnið í sjálfum sér, þar á meðal ég sjálf.
Sakna þín,
Mamma
|
| 20-04 -2007: 20.04.2007 |
|
hola yordis saludos te mando desde chile espero que te acuerdes de mi si puedes comunicate conmigo mi ddireccion es tesigotealiento_267@hotmail.com espero tu respuesta
|
| Ólöf: 19.04.2007 |
|
Rosa gaman ad fylgjast med þer tegar tu kemur heim næst hafdu samband vid mig þu veist eg er smá flökkukind eg er svo ung ad árum hafdu þad gott stelpa min þu ert alveg frábær get eg ekki fengid simanumerid þitt kv Ólöf
|
| M A R K O: 18.04.2007 |
SALUDOS A ISLANDIA
|
HOLA JORDIS UN SALUDO DESDE EL FIN DEL MUNDO DE CHILE NO SE TE OLVIDA KUIDESE MUCHO
AGUANTE LA U DE CHILE MAS Q UNA PASION ES UN SENTIMIENTO
|
| Amma Hjördís: 18.04.2007 |
Spænskir lögregluþjónar
|
Hafðu mynd af mér í vasanum og segðu þessum hrottum að það sé mér að mæta ef þeir eru ekki góðir við þig, en annars eru þeir nú alræmdir fyrir spillingu. Ég bið fyrir þér. Ég er svo forvitinn um leigusalann þinn hvernig komst niður úr trénu?
Amma elskar flökkustelpuna sína.
|
| Helga vinnufélagi ömmunnar: 16.04.2007 |
Kveðja
|
djö.....sins ræflar þessar spænsku löggur.
Er ekki hissa á því þó þú hafir grátið - hefði gert það líka.
Það er frábært að fá að fylgjast með ferðalagi þínu um víða veröld - þvílík ævintýri sem þú lendir í. Hlakka til að heyra meira frá þér og verð fyrsta manneskjan til að kaupa "Dísudoðrant" -> þegar hann kemur út :-))
|
| Ívar Bro !: 16.04.2007 |
Þvílíkt og annað eins...
|
þeir eiga ekki að komast upp með þetta... að "Abbast" upp á systir mína? og það Lögreglan :|
ég er allveg orðlaus !
en mundu að ég elska þig :) hvað sem gerist...
|
| Sigrún Helga: 15.04.2007 |
|
Hæ aftur :)
Ég var að lesa commentin frá ömmu þinni og ekki spurning að þú færð ritsnilldina frá henni!! Þið eigið greinilega yndislegt samband. En já eins og hún amma þín sagði þá væri bara snilld ef þú settist nú niður og skrifaðir eitt stykki doðrant um ferðalögin þín og það sem þú hefur upplifað!! Þú ert alveg snilldarpenni :) Hugsaðu um það...
|
| Sigrún Helga: 15.04.2007 |
|
Hæ Dísa mín :) Gott að heyra að allt gengur vel. Hafðu það gott. En je minn hvað þessi maður er góður (leigusalinn) en hvernig spajarði hann sig svo???
|
| Ólöf: 14.04.2007 |
|
Æðislegt hvað þú ert heppin að hitta svona gott fólk það er með ólíkinðum hafðu það bara gott kveðja frá okkur á Felli Ólöf
|
| Hjördís amma: 13.04.2007 |
Kyrrðardagar í Dymilviku
|
Eins og þú veist velur amma þín að þegja um bænadagana og dvelur í Skálholti, þar sem haldið er utan um mann, bæði andlega og líkamlega. Mér líður alltaf svo vel í Skálholti, en svo skellur heimurinn á sálina þegar út er komið og kannske fer mér best að þegja. Ég fór svo beint í sumarbústað hjá vinahjónum mínum. sem eiga bústað í nágrenni Skálholts eða við Tungufljót. Við fórum í göngutúr í góða veðrinu á Páskadag og mikið var gaman að fylgjast með álftunum sem eru að koma sér fyrir og engin skal voga sér inn á þeirra svæði og hávaðinn sem fylgir því þegar álftahjónin(sem halda saman alla ævi) reka í burtu ungfugla sem halda að þeir megi allt, yndislegt. Jæja kellingin mín vona að þér líði vel í Almeríu og alltaf gaman að fylgjast með þér. Amma biður fyrir fjölskyldunni sinni, sem hún elskar, og veit að það er vakað yfir henni. Er ekki lífið dámsamlegt ! Njóttu þess.
|
| Mamma: 08.04.2007 |
Gleðilega páska
|
Hvaða málshátt fékkst þú?
Sendum knús og kossa til þín
"ud på lived"
Mamma og feðgarnir
|
| Ólöf: 06.04.2007 |
|
Fretti af þer í heimsókn á Felli verst að hafa ekki fengið að sjá þig var í Barcelona helgina 23-25 mars allveg geðveikt gaman bæó
|
| sigrun helga: 28.03.2007 |
Hola
|
Hæ sæta og takk fyrir kaffispjallið í dag :) Gaman að hitta á ferðalangann þegar þú ert á klakanum!! Seeya
|
| Mæja: 28.03.2007 |
|
þér er velkomið að kíkja á mig ef þú átt leið hjá Ungverjalandi. Sé fram á að vera hér nokkur ár í viðbót.
|
| : 27.03.2007 |
|
║║╔═╦╦╦═╗║╚╝╠═╦╦╗
║╚╣║║║║╩╣╚╗╔╣║║║║
╚═╩═╩═╩═╝ ╚╝╚═╩═╝ ♥
|
| Hjordis amma: 12.03.2007 |
amma 'i Polandi
|
Gudi se lof fyrir ad vita af ter elsku kellinigin minGdansk er yndislega falleg borg og er tessi ferd fin,buin ad hugsa til tin oft a dag hlakka tila d sja tig tin elskandi amma. lyklabordid her er ekki eins og isl svo tetta er kannske varla laesilegt.
|
| Ívar Bro: 12.03.2007 |
óneii
|
fínu íslensku stafirnir þínir koma hér hjá mér :)
ég sakna þín og er að telja niður dagana þangað til að þú komir heim og núna eru þeir 10 :D
þetta styttist ! ! !
Lov jú syst...
|
| Sigrún Óskars: 10.03.2007 |
Rok og Rigning á Íslandi
|
Hæ Snúlla
Er að hugsa til þín héðan úr rokinu og rigningunni, þarf ekki að þvo glugganna í bráð, rigningin skellur svo á þeim. Er líka að bíða eftir fleiri ferðasögum frá þér.
Knús og kossar frá mömmu
|
| Hjördís amma: 04.03.2007 |
Ég er ekki búin að gleyma þér..........
|
Elsku flakkarinn minn, það er sko allt í lagi hér á Skúlagötunni en þú veist samt að ég sakna þín en er samt glöð þín vegna að geta gert það sem þú vilt helst gera, að flakka, og kynnast framandi menningu þjóða. Ég hef verið á flakki hér milli safna,tónleika,matarboða og annarar skemmtunar. Það var pizzuveislla hér á föstudagskvöld, tilefni var að fá tölvusnillinginn pabba þinn til að hjálpa mér og um leið og það spurðist flykktist fjölskylda og vinir til veislunnar, mér til mikillar ánægju, við vorum tólf sem hámuðum í okkur Dominós af mikilli áfergju og ánægju. Allt tölvukerfið virkar og ég er komin með þráðlaust lyklaborð og þráðlasua mús og prentara með akanna og ljósritunarvél, nú get ég allt, þegar ég er búin að læra á þetta allt en það kemur fljótt. Ég er núna að undirbúa mig til Póllandsferðar næsta föstudag og verður það mjög spennandi að hitta Katsjúba og dansa með þeim í þorpinu þeirra úti í skógi. Amma þín biður Guð að vera með þér á flakkinu og ég treysti honum fyrir þér. Er að fara á eftir í æskulýðsmessu með Ívari. Það snjórar núna en veðrið hefur verið dásamlegt undanfarið og íslenska birtan kemur mér í vímu daglega. Elska þig snúllan mín.
|
| Frikki: 01.03.2007 |
Kveðja
|
Gaman að lesa ferðasögurnar þínar, hafðu það gott ljúfan.
|
| María: 26.02.2007 |
Dísa!!
|
Ég trúi ekki að þú sért að fara til Afríku án mín!!
Ps. Þú ert æðislegur penni skvísa ;)
|
| Elísabet frænka: 25.02.2007 |
Hverjar eru líkurnar??
|
Já svei mér þá, Guðný vinkona var að segja mér að hún hefði rekist á þig og gat ekki annað en sagt hæ :)
Fyndið að ég skuli hafi verið að tala um hana áður en þú fórst og að þið hafið hist!! Gaman að þessu ;) Hafðu það nú gott :*
|
| Hildur: 19.02.2007 |
|
Voðalega ertu háfleyg í dag.
Eg sendi þér meil á gamla netfangið alicebrazil... fyrir löngu. Það væri gaman að heyra frá þér.
Hér er bolludagur í dag og vor í lofti.
|
| Tóti og Auja: 15.02.2007 |
Þorrablót í Barcelona
|
Hæ Dísa
Þorrablótið er eftir viku í Poble Sec og kostar ca 25 E.
Sendu mail á Einar í íslendingafélaginu einarkristinn@gmail.com ef þið Craig viljið koma. Enric virðist ekki nenna enn við erum að vinna í því.
Tóti og Auja
|
| viivic: 14.02.2007 |
|
Great site. Admin cool boy
|
| Ívar Bro: 13.02.2007 |
held það
|
ég held að valentínusardagurinn sé hér á íslandi... allavegana er hann haldinn í skólanum hjá mér :)
Strúna: ég Ívar (Bróðir hennar) er að ferma mig og hún kemur hérna í ferminguna mína :D
|
| Strúna: 12.02.2007 |
Hva? Hva? Hva?
|
Ertu bara á leiðinni heim aftur??? Hvað er að ske?
|
| Hjördis amma: 11.02.2007 |
Löggilt gamalmenni
|
Mér hefur hlotnast sá heiður að ná því að verða löggilt gamalmenni. Það þýðir ekki að ég sé a´framfæri Tryggingarstofnunar þar sem ég er langt frá fátækrarmörkunum, mér sé þ0kk. Það er búið að vera mikið gaman vegna fyrrgreinds heiðurs og ég hef ekki komist hjá því að hugsa málin upp á nýtt, þar sem ég hélt alltaf að það að verða löggilt gamalmenni væri að ver aldraður en það er ég ekki nema þegar ég skoða upptökurnar af mér frá ferðalagi okkar um Suður Ameríkur, þá sé ég einhverja gamla konu sem var okkur samferða. Jæja flökkukellingin mín,kannske ertu búin að fara á þorrablóti íslendinga í Barcelónu, og líkl ef svo er þáhorft á kindahsusa og blóð pylsur. En ég veit líka að þar er eða verður sætur strákur ættaður frá Íslandi, sem á m0mmu sem varð l0ggilt dag á undan mér. Ég sakna faðmlaganna þinna og sambúðar á Skúlagötunni og er aftur að venjast því að búa ein. Eg er svosem ekki mikið heima er út og suður á námskeiðum og bíó og leikhúsum svo ég læt mer ekki leiðast. Þakka þé fyrir yndislegar afmæliskveðjur og komdu heil heim.
Amma elskar stelpuna sína þó hún sé ekki með stór brjóst og mjótt mitti,en þú ert með stórt hjarta og góðan haus og það er það sem gildir. Hlakka til að sjá þig fallegust
|
| strúna: 10.02.2007 |
Sturtu ólán
|
Ég er svo mikið vatnadýr að ég get ekki komið að heimsækja þig fyrr en sturtan er komin í lag. Drífðuíþessu kona! Hehe Knús
|
| Ólöf fellasmellur: 07.02.2007 |
|
allt gott að fretta eg er buinn ad fa ingibjörgunæturvakt
með mer um helgar eg sakna þin en hafðu það æðislegt mig langar i gs numerið þitt kveðja ólof
|
| sigga: 01.02.2007 |
|
"hljómar" átti víst að koma einhversstaðar þarna inní...soldið þreytt núna!;)
|
| sigga: 01.02.2007 |
|
Man sko eftir sagrada familia! ;)
Er auka rúm í íbúðinni þinni, sem að fyrir vitlausan íslending (samt soldið heimsvön eða hvað maður nú segir) eins og smá fornaldarlegt;) Hafa þeir ekkert heyrt um dyrasíma þarna úti;)
Sit í Skotlandi núna, nokkrir tímar í flugið til íslands, og langar satt að segja ekkert þangað akkurat núna;)
Te amo demais!!!
|
| Hjördís Jensdóttir: 31.01.2007 |
Ég vildi að ég væri hjá þér..........
|
Ég vildi gjarnan vita hvernig þú kemst inn, ef enginn er heima til að toga í hlerann, já þetta hlýtur að vera skemmtilegt að búa í gömlu hverfi þar sem mannlífið líður áfram eins og í ævintýrunum. Ég sé þig í anda hlaupa út í bakarí í náttfötunum og fá þér kaffi og rúnnstykki til að maula upp á þaki í sólinni.
Amma elskar þig
|
| Sigrún næturvörður: 30.01.2007 |
Má ég þá koma?
|
Ég má þá fara að koma?
|
| hjördís amma: 23.01.2007 |
Farfuglar koma og fara
|
horfi í tómar skúffur og skápa og eri mér grein fyrir að sólargeislinn minn er horfin - í bili-
Skemmtu þér vel og njóttu lífsins og horfðu til sólar og hugsaðu um ömmu þína. Kveðja HJ
|
| Ívar Bro: 19.01.2007 |
ég sakna þín svo :'(
|
ég er strax farinn að sakna þín... að hafa ekki hláturinn þinn hérna í húsinu þegar ég læri fyrir próf... það er allt svo tómlegt :S
Kveðja Ívar Bro!
|
| Malla: 18.01.2007 |
kveðja
|
vonandi gengur allt vel hjá þer vina mín,´eg fylgist með þér ,Hef samband við ömmu. kveðja
|
| Sigrún næturvörður: 18.01.2007 |
Strax farin að sakna þín!!
|
Æi hvað það verður tómt á Felli án þín, og líklega enn verra þegar ég hætti líka heheheheh! Kem þegar þú verður búin að finna íbúð. Annars er ég kannski að fara til Krítar að vinna á bar (ekki samt að herma eftir þér) að vinna í sumar!! Við kannski hittumst á einhverju miðsvæði. Knús,knús,knús
|
| Soffía: 25.12.2006 |
|
til hamingju með áfangann bara gaman að fá húfuna hvað er svo framhaldið?
|
| Sigga: 20.12.2006 |
|
Til hamingju með daginn elsku Hjördís mín:) Hlakka til að sjá þig á næstu dögum, og þá færðu sko stóóóórt knús:D
te amo!!
|
| Soffía: 07.12.2006 |
hola Hjördís
|
hæhæ gaman að rekast á síðuna þína ég er einmitt að fara til suður Ameríku í byrjun janúar og get ekki beðið eftir að fara. vorum saman í menntó vinkona Sigrúna:)
|
| Jóhanna: 28.11.2006 |
Neiii hæ hæ
|
Massa síða skvís en hey hey hey ég hlakka ógó mykð tl 1 des með þér málum bæin rauðan tökum alla liti á þetta hehe og gerum allt vitlaust er þaggi :)
www.crazy-love.blogar.is
|
| Ívar Bro: 18.11.2006 |
Hlakka til að sjá þig ;)
|
Get ekki beðið eftir að sjá þig hjördís :) sjáumst á eftir :D
Kveðja
Ívar Bro ;)
|
| Hjördís amma: 16.11.2006 |
mig hrjáir háls og haus
|
Í dag er dagur íslenskrar tungu og í tilefni af því að ég að bíða eftir heimkomu þinni þá datt mér í hug að segja þér að hér ríkir hvítfissandi og kuldalegt sjávarútsýni mínusgráðurnar eru sex og ég er undir sæng að lesa góða bók, í hlýjunni. Þrátt fyrir kulda og tekk elskar amman þín heimshornaflakkarn sinn.
|
| Helga Margrét Guðmundsdóttir: 15.11.2006 |
Á Inkaslóðum
|
Sæl Hjördís
Hér er annar sporðdreki á ferð sem langar mikið að hitta þig á Íslandi. Mig langar að kynna fyrir þér alþjóðlegt verkefni sem ég er að setja í gang hér á landi og sem tengist INKUNUM og lamadýrum.. Inka menningu o.fl. sjá www. andyllama.com Þetta er verkefni sem hefur yfirskriftina Think Globally and act locally
Hvenær verður þú á landinu næst?
Kveðjur
Helga Margrét s. 896-3728
|
| Elísabet Frænkz: 13.11.2006 |
ein, sein kveðja :)
|
Til hamingju með afmælið í gær!!!
.. en betra seint en aldrei ;)
Var að koma heim frá mínu flakki um Danmörku og lenti í basli með flugið heim... en það hafðist að lokum :)
Nú styttist bara í mig haha!!
Annars biðja amma og afi voða vel að heilsa og skila afmæliskveðju
kys&kram
|
| Hjördís Jensdóttir: 13.11.2006 |
Afmælisbörnin mín
|
Er ekki lífið dásamlegt ! 21 árs á Kúpu og 22 ára á Indland hver vill meira.
Ég hugsaði til þín og mömmu minnar í gær en eins og þú veist var þetta hennar afmælisdagur líka.amma elskar þig á afmælisdaginn og alla aðra daga.
|
| Jóhanna: 13.11.2006 |
Hæ Hjördís!
|
Vona að þú hafir haft það gott á afmælisdaginn.
Til hamingju og skemmtu þér vel.
Kveðja,
Jóhanna.
|
| gulla, viddi, arnar og gunnlaugur: 12.11.2006 |
til hamingju með daginn!!!
|
Elsku Hjördís
Sendum okkar bestu afmæliskveðjur til þín. Vonum að þú hafir það gott á Indlandi! Kærar kveðjur úr Hryggjarselinu!
|
| Heiða (Siggu mamma): 12.11.2006 |
Til hamingju með afmælið
|
Hæ hæ elsku Hjördís og innilega til hamningju með daginn. Gaman að fylgjast með ævintýrum þínum. Njóttu þín vel og farðu varlega. Knús frá Norðurtúni á nesinu góða.
|
| Sigga: 12.11.2006 |
Hæ:D
|
Til hamingju með afmælið elsku bestasta priman mín:) Vona að þú hafir notið dagsins rosalega vel í Indlandi, reikna allavega með að þú hafir fengið eitthvað rosalega gott að borða, miðað við lýsingarnar;)
Hlakka ekkert smá til að hitta þig um jólin, það styttist og styttist:)
|
| Anna, Bjössi, Elísabet og Eva: 12.11.2006 |
Afmæliskveðja!
|
Elsku Hjördís.
Innilegar hamingjuóskir með daginn. Hafðu það gott og farðu varlega.
|
| pabbi, mamma og Ívar bróðir: 12.11.2006 |
Til hamingju með afmælið
|
Hæ hæ svítí pæ Janam Din Bahut Mubarak Ho eða innilega til hamingju með afmælið. Vonandi að þú njótir þess og þín vel þarna á heitum Indlandsströndum. Ástar- og afmæliskveðja pabbi, mamma og Ívar
|
| Hjördis Jensdóttir: 09.11.2006 |
Nú vildi ég vera með þér
|
llir sem ég tala við og hafa verið í Indlandi eru heillaðir af landinu og langar aftur, svo ég reikna með því að næst fjölskylduferð verði til Indlands eða hvað heldur þú finn ekki spurningamerkið á nýju tölvunni. Jæja það er að skella á fárviðri aftur og nýbúið og ég er búin að festa stólana. Hjörleifur litli verður skírður 26. nóv. í Grafarvogskirkju og ég vona að þú verðir í fríi því foreldar þinir verða í útlöndum. Hvenær fáum við kaldir Frónbúar að sjá myndir frá Goa,ströndinni mergðinni og fjöllunum ég hlakka til.
Amma elskar þig hvar sem þú ert stödd í heiminum.
|
| Helga Hilmarsd.: 08.11.2006 |
Þvílíkt ævintýri!
|
Frábært að fá að fylgjast með þér á þessari flottu síðu. Þú ert meiriháttar !
|
| hjordis amma og langamma: 05.11.2006 |
kveðja frá íslensku roki og rigningu
|
mikið er gaman að heyra frá þer og að strondin er fín en ég vildi ekki vera með þér á gistihúsinu, en ertu ein? ég vildi dansa með þér á strondinni en ég geri það seinna. 'i nót dönsuðu stólarnir á svölunum salsa og ég tók þátt í því og tók þáinn í stofu brjálað veður.
Hjörleifur er kominn heim og mjög vær og góður. njóttu lífsins og ekki gleyma að Amma elskar þig
|
| Ívar Bro: 05.11.2006 |
Sakna þín
|
Ég er strax byrjaður að sakna þín :( en gott að ferðin hafi gengið vel og greinilega gaman hjá þér ;) hafðu það sem ALLRA best þarna úti... (Ég þakka fyrir að hafa ekki farið með þér... frekar hefði ég sofið á götunni en á þessu bæli)
Kveðja
Ívar bro
|
| Gulla Gísla: 07.08.2006 |
Velkomin heim
|
Velkomin heim kæra Hjördís!!!
BEstu kveðjur úr háhæðum Breiðholts
|
| Sigga: 27.07.2006 |
|
Velkomin heim á klakan elsku frænkan mín;*
Vona að þú finnir þér vinnu og getir skemmt þér smá á íslandinu góða, það er nú ekki alsæmt þar;)
Vona líka svo roooosalega mikið að við hittumst bráðum!!
|
| hjördís amma: 25.07.2006 |
amma á fluginu
|
ég fór á flug um helgina í orðsins fyllstu merkingu, sá mitt fagra land að himni ofan. Hringsólaði yfir Háafoss, missti andann yfir litadýrð Landmannalauga og tárfelldi næstum yfir blárri fegurð Langasjávar, tárfelldi yfir ráðabruggi misviturra ráðamanna sem geta hugsað sér að veita aurugri Skaftánni í Langasjóinn, fyrir skammtímagróðasjónarmið. ég bið Guð að veita þeim vit. Snæfellnesið var tekið frá jörðu og mér var nú hugsað til okkar í fjöruborðinu við Garða, og mikið langaði mér til að skella mér í sjóinn en hann er kaldur ekki heitur eins og sjórinn við Sao Luis eða Copacabana sem við erum nýbúnar að sulla í, en fjaran við Garða hefur sitt aðdráttarafl og dregur mig til sín ár eftir ár. Ég hlakka til að hitta flökkustelpuna sem ég elska út af lífinu og segi góða ferð og velkomin til Íslands.
Amma flakkari.
|
| oli: 22.07.2006 |
töff siða
|
er þetta þin eigin heimasiða, frekar töff ef tu hefur ahuga þa er min www.obe999.blogspot.com myndir fra su-asiu
|
| Hjördís amma: 17.07.2006 |
amma á hjólinu
|
mikið er ég fegin að sjá að það rignir í fleiri heimsálfum. Ég var bún að ákveð aða vera inni um helgina og lesa góða bók og elda góðan mat. Ekta sundlaugarveður milt og gott með smá úða, bara yndislegt líf í heita pottinum, sætir kallar og kellingar að spóka sig í rigningunni. Setti upp ísl kjötsúpu. Maður eldar ekki kjötsúðu fyrir einn svo ég bauð Möllu og Gyðu í mat og áttum við skemmtilegt kvöld. En gærdagurinn sveik því ekki var hægt að hanga inni í góða veðrinu svo frúin tók út hjólið g-og hjólaði alla leið upp í Grafarvog til Nonna og Guðrúnar, Það var erfitt upp brekkurnar en mjög skemmtilegt að svífa um og njóta umhverfisins. Nonni hétt upp á afmæið sitt um kvöldið og hvað heldur þú að hafi verið í matinn? Kjötsúpa! Það er alltaf fjör í Laufenginu fullt af fólki og mikil veisluföng. Rakel er að verða smábumulína en lítur mjög vel út. Allir biðja að heilsa þér og ég er að fara á þjóðhátíð í Eyjum.
Amma elskar flökkutöffarann sinn
|
| hjordis amma: 12.07.2006 |
Í fréttum er þetta helst
|
Á þessu blessaða landi okkar eru allir að verða vitlausir vegna tíðarinnar, sólin skín bara á útvalda og þá nokkrar sekundur á dag.
Meindýraeyðir saknar geitunganna sem skriðu úr búum um miðjan mai og þoldu ekki kuldann og hurfu eins og Framsóknarflokkurinn.Morgunblaðið aulýsir "Vel launuð líkamsrækt fyrir fólk á öllum aldri og býður kr: 30.915.- á mánuði fyri klukkustundar langan hressandi göngutúr, til viðbótar kemur þungaálag(sem ég fengi örugglega eða?) og gr fyrir aldreifinar 2xí viku. Kannske maður ath þetta þegar að starfslokum kemur. Herra Ólafur Ragnar og frú Dorrit heimsóttu hera Bush og frú Lauru og færðu þeim að gjöf ísl lax og skyr, þetta er liður í átaki í Bandaríkunum til að kynna ísl vörur sem er nú gott og blessað en kvöldverður var nú eftir allt erfiðið Colarado lamb í aðalrétt , verði þeim að góðu. Ég horfði á úrslitaleikinn í HM austur í Hveragerði og hélt með Frökkum, ég grét með Zidane eftir að hann stangaði ítalann sem var búin að ógna honum helvískur. nÚ ÞYKJA íslensk börn of feit og því auglýsir Ferðafélagið útivistarnámskeið fyrir börn og unglinga, haldið verðu í Þórsmörk og engir tölvuleikir né símar með í för. Það verður lært að tjalda og ganga á fjöll og pakka í bakpoka. Ekki meira í bili Elska stelpuna mína í sólinn. Þíin amma
|
| hjordis@bmvalla.is: 03.07.2006 |
Ég græt með Ronahaldino
|
er enn sorgmædd við Ívar mættum í Braziliubolunum og hvöttum okkar menn en það dugði ekki ónýt helgin.
Ég skil ekki afhverju ég fór ekki á flakkið með þér, veit ekki hvað ég er eiginlega að gera hér í vinnunni. Saknaðarkveðja til Íbúa Brazilíu og þín, elsku töffarinn minn. Hjördís amma
|
| Mamma: 01.07.2006 |
Ég græt með Brasilíubúum
|
Sorglegur atburður; Brasilíumenn dottnir út úr HM í fótbolta, heimsmeistararnir sjálfir.
Við horfðum á leikinn og studdum "okkar" menn, en..........
Bestu kveðjur til Brasilíu,
Mamma.
|
| Gummi kall: 29.06.2006 |
vooo
|
Ér búinn að senda þér status report sæta.. rock on
|
| Sigga: 27.06.2006 |
|
Farðu þér nú bara ekki að voða alein í Borg guðs frænkan mín;)
Er að fara á hróarskeldu á morgun, verður eflaust mikið fjör og mikið gaman:D
Lov u ;*
|
| Amma og afi: 23.06.2006 |
Afmæliskveðja!
|
Elsku Guðmundur minn.
Innilegar hamingjuóskir á afmælisdaginn.
Vona að þið njótið lífsins vel og að allt gangi vel á leiðinni heim, sjáumst eftir viku kát og hress.
Bestu kveðjur til ykkar allra.
|
| Jóhanna: 23.06.2006 |
Til afmælisbarnsins!
|
Taktu eftir "barnsins" maður getur leyft sér að vera barn einu sinni á ári, jafnvel þótt sumir séu orðnir fjörutíuogníu. Sé að systa var á undan mér að senda kveðju, svona er að vera yngsta barn huh alltaf á eftir!
Kom einnig heim á eftir Önnu á miðvikudaginn eftir tveggja vikna sól og vind á Fuerteventura - mikið gott.
Bið að heilsa og vona að afmælisbarnið njóti lífsins á afmælisdaginn og fái sér extra mikinn bjór í tilefni dagsins og ekkert röfl.
|
| Anna: 23.06.2006 |
Til hamingju með daginn!
|
Komin heim eftir vel heppnaða ferð til Belfast og Barcelona. Vona að þið hafið það gott og óska afmælisbarninu til hamingju með daginn! Sjáumst fljótlega, bestu kveðjur til ykkar allra, Anna og fjölsk.
|
| þóra Guðmunds,: 21.06.2006 |
|
halló Hjördís J. kveðja frá þóru G. og co
|
| Ása Hanna og Gylfi: 17.06.2006 |
Þjóðhátíð 2006
|
Kæra Hjördís J. og fjölskylda,
Héðan úr kalsanum og bleytunni, sendum við þér og ástvinum þínum, þrammandi um brasílanska frumskóga, bestu þjóðhátíðarkveðjur. Það er gaman að fylgjast með famvindu ferðar ykkar, sem hlýtur að vera ævintýri líkust? Mogginn hleðst upp, Ása kom úr Hveragerði fyrir viku, bati og sársaukaminnkun á jákvæðum nótum, engin bakslög, toj, toj, toj. Hún er ákveðin í að fara á tangó-námskeið með haustinu, ef HJ er tilbúin að kenna henni frumskrefin.
Bestu kveðjur,
Ása og Gylfi
|
| Guddli: 15.06.2006 |
Skiladu kvedju.........
|
....... til pabba thins
mikid hlytur thetta ad vera gaman hja ykkur
Fullt af rigningu og "skemmtilegheitum" her a klakanum
|
| aslug thorhallsdottir: 11.06.2006 |
xxxx til storu disu og hinna ferðalanganna
|
rigning og suld dag eftir dag en hef tad samt gott miss you
|
| anna og erna: 10.06.2006 |
|
Kaer kvedja til Hjordisar Jensdottur og fjolskyldu fra glaesihoteli a Grikklandi
|
| Malla: 09.06.2006 |
ömmu og allrahinna
|
komin frá San Francisco allt gekk vel æðislega
gaman, gaman að lesa bloggið frá Dísu
gangið ykkur vel kveðja Malla
|
| Unnur: 08.06.2006 |
|
Hæ sæta mín, ég vildi bara senda á þig smá kveðju héðan:) Ég sit hérna og er að hlusta á Hjálma og sakna þín svo!!! Ég er á leiðinni á kaffihús og get ekki slitið mig frá tónlistinni! En ég var svona að pæla... Hvenær kemuru heim? Ég hef ekki talað við þig svo lengi! Ég fer að heimta það að þú komir á MSN og spjallir smá við mig! Ég vill fara fá þig heim;) Vill fá djammfélagan ógurlega til mín aftur:) hehe, en allavegana, ástarkveðjur héðan til Dísu skvísu!
TQM mi amor! Unnur
|
| Gulla Gísla: 05.06.2006 |
Bestu kveðjur...
|
Sendum okkar bestu kveðjur frá Fróni. Rigningarsuddi úti en sæmilega hlýtt - eða þannig - ætli það séu ekki 12-14 gráður ;-)
Sjáumst hress og kát seinna í sumar. Og kæra Dísa/Alice - hafðu nú stjórn á mömmu þinni á mörkuðunum! Bestu kveðjur til ykkar allra!
Gulla, Viddi, Arnar og Gunnlaugur
|
| sigrun: 04.06.2006 |
amma er enn i lagi
|
hafid engar áhyggjur, amma er i finu lagi. njotum oll thessarar aevintyraferdar med disu.
Kvedja til allra fra brasiliu.
Sigrun
|
| kristín og Ármann Hveragerði: 04.06.2006 |
Er ekki allt í lagi með ömmu
|
Hæ Dísa gaman að lesa pistlana þína, flottar myndir, ævintýra ferðir ég vona að amma og fjölskyldan njóti ferðarinnar
kveðja frá Hveragerði
|
| Ása Hanna og Gylfi: 03.06.2006 |
Tékkað á Hjördísi eldri
|
Sæl Hjördís yngri,
heilsaðu ömmu þinn frá okkur. Hér er yndælis veður á aðfangadegi Hvítasunnu, 12 gráður hér, 18-20 gráður Egilsstöðum. Hafið skemmtilega daga, við fylgjumst með ferðasögunni eilífu, hún er upplýsandi og smellin, þér til mikils sóma.
Bestu kveðjur til allra,
Ása Hanna og Gylfi
|
| Hörn Gissurard.: 02.06.2006 |
Frábær ferðasaga og kv. til Hjördíar J.
|
Hef fylgst með ævintýralegu ferðalagi þínu gegnum skrif þín á síðunni. Meiriháttar upplifelsi, þú ert flottur penni.
Góðar kveðjur til Hjördísar Jens - hlakka til að heyra ferðasögu.
.... ég er sumsé vinkona ömmu þinnar.
kv.Hörn
|
| : 01.06.2006 |
|
við biðjum bara að heilsa ykkur ollum og vona að þið meigið eiga góða ferð um brasilíu Lísa og egill....og Egill h
|
| lisa amma og egill afi: 01.06.2006 |
|
elsku disa min mikið var gaman að lesa pistilinn frra þer og gott að vita að þu ert kominn i arma fjolskildu þinnar og gott a' ferðin gekk svona vel hjá þeim og allir glaðir héðan er allt gott að frétta nuna er farið að hlina i veðri p.s egill h er að skrifa þetta
|
| Edda Ástvaldsdóttir: 29.05.2006 |
Hafðu það gott.
|
Hugsa til þín, í frábærum fíling
ferlega er gaman af´essum díling
Strákarnir á línunni sakna þín mikið
"monney" málefni er enn ósvikið
bla bla bla á framandi tungu
kveðja til þeirra þroskuðu og ungu
Kveðja brúna úlpan.
|
| Jóhanna frænka: 26.05.2006 |
Sæl Hjördís mín ...
|
Gott að allt er búið að ganga vel og að þér líður vel þarna úti.
Veit að amma og afi á G6 verða voðafegin að fá stelpuna sína heim.
Kv. Jóhanna.
|
| originalinn: 24.05.2006 |
það styttist í stefnumótið
|
jæja kelli mín nú styttist í að ég og mínir mæti þér og argentísku þjóðinni þú lætur alla sætu strákana vita að loksins fái þeir mig augum litið. Ég hlakka samt mest til að hitta Dísuna mína.sjáumst á sunnudag. Amma elskar Dísu sina
|
| aslaug b thorhallsdottir: 22.05.2006 |
|
hæ Disa skvisa gaman að lesa um ferðir þinar var að tala við ömmu þina ,hun hlakkar mikið til að sja þig gangi ykkur vel a ferðalaginu kveðja aslaug
|
| Ívar: 20.05.2006 |
Hæ Syst
|
Gaman að lesa frá þér og skoða myndir... aðeins sjö dagar þangað til við hittumst :) þetta á eftir að líða eins og einn dagur
Elska þig,
Þinn bróðir
Ívar
|
| Hjördís amma: 19.05.2006 |
sammála síðasta ræðumanni- snilldarpenni
|
Það er komið sumar á Íslandi mannskapurinn í hvítum bolum og blúndum og nokkrir í stuttbuxunum. Hitastigið er 3 - 9 gr og öll borð á útikaffihúsunum þéttsetin. Ef hitinn væri stöðugt í 15 gr eins og hjá þér þa´væri ekki gott að vera lokaður inn á skrifstofunni.Ég horfi á eldrautt sóalrlag út um eldhúsgluggann minn ef ég er ekki á hjólinu mínu niðrá Sæbrautinni, þetta er dásamlegur tími. Kosningarnar nálgast og ég fer beint úr vinnunni niður á kosnigaskrifstofu og reyni að veiða óákveðnar sálir í net mitt, en ég lofa ekki öllu fögru eins og flestir gera, við gerum okkar besta til að laga það sem lagfæra þarf. Jæja kelli mín nú hellist heil fjölskylda yfir þig um næstu helgi og frjálsræði þitt skerðist í heilan mánuð, mikið hlakka ég til að hitta þig , við verðum öll frjáls ,saman. Hlakka til að sjá myndir frá Chile.
Það eru mjög margir vina minna vinnufélagar og fleiri sem fylgjast með þér á síðunni og dáðs að ritstíl þínum . Þú skrifar ferðabók við tækifæri og gefur út fyrir jólin er það ekki? Elska þig
|
| vignir: 16.05.2006 |
Snilldarpenni
|
sæl vertu Vignir heiti ég og hef kikkað á síðuna hjá þér annað slagið ! virkilega gaman að lesa það sem að þú hefur frammá að bjóða ! góður penni, maximum respect !!!
góða ferð og vonandi hittumst við á framandi slóðum síðar meir :)
kv vignir
|
| Hannaxxx: 16.05.2006 |
Mi bonita Dísa!
|
Vá þvílíkt ævintýri!
takk fyrir skilaboðin á bloggið mitt.. mér er mikið búið að vera hugsað til þín síðan ég kom úr minni ameríkuferð.. vissi að þú værir farin af landi brott þar sem það var alltaf pælingin.. Ísland er of lítið og hversdagslegt fyrir hana Hjördísi mína.. fyndið samt eitt þú varst í NYC á sama tíma og ég! trúiru því!?! ég kom til NJ aftur 10.jan og eyddi afmælinu mínu í NYC! hugsa sér.. lítill heimur!
Annars er ég bara búin að lesa pínu.. ekkert mikið.. gaman að heyra af ævintýrunum þínum! hvenær hefðiru svo hugsað þér að koma heim aftur? komin einhver dagsetning? líklega ekki ha.. well kannski næ ég að sjá þig áður en ég held af landi brott í haust.. jamm það eru fleiri þreyttir á þessum hverdagsleika en þú elskan mín :o)
heyrumst!
koss frá henni Hönnu þinni!
|
| Ólöf á Felli: 15.05.2006 |
Fell Fell Fell
|
Vid erum ad vonast eftir ter ,i sumar ´aFell
Hvenær kemurdu heim
|
| Rakel frænka: 09.05.2006 |
hæjjj!!!
|
hæj hvað segiru.flott síða,ég kíkji hérna inn þegar ég fer í tölfuna en gleymi altaf að kvitta,vona að þú hafir það gott,og sjáumst eftir nokkrar vikur bæ bæ,þín rakel frænka ;)
|
| Kristin Sjöfn Helgadóttir: 08.05.2006 |
Storkosleg stulka
|
ég er vinkona oemmu tinnar,megi ther ganga sem best njottu lifsins meðan thu getur en farðu varlega kvedja Kristín Sjofn
|
| Hjördís amma: 05.05.2006 |
Til hamingju
|
Það sem þú lærir á ævintýraferðalagi þínu kennir enginn háskóli. þú býrð að þessu alla ævi. Á Íslandi er farið að vora gróður að lifna við og birta yfir mannlífinu. Nú líður að kosningum og loforðin dynja á gamla fólkinu, öryrkjum og öðrum minni máttar. Hraðbrautir eiga að liggja til allra átta og skattar að lækka. Það á að leggja land undir virkjanir og álver til að koma í veg fyrir kreppu svo allir geti haldið áfram að horfa á stöð 2 og ekið um á jeppunum út í búð,farið í sólarlandaferðina sína og til Parísar að versla. Gaman gaman og hverjir borga? öryrkjarnir og gamla fólið og þeir sem minna mega sín, er það ekki? Ég vona að gönguferðin þín verði til þess að vekja áhuga þinn á gönguferðum um Ísland sem hafa verið mínar ævintýraferðir og engu líkar .enda er landið fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar....... hlakka til að skoða myndirnar og að hitta þíg innan fárra daga. HJ
|
| Sigga: 03.05.2006 |
:)
|
Prima:)
Það er svo gaman að geta fylgst með þér hérna á blogginu, fyrst maður getur ekki verið með í ævintýrinu verður maður að láta sér nægja að lesa um það! *öfund*!!!
sakna þín ótrúlega mikið og hlakka til að sjá þig aftur;* Hafðu það gott í draumalandinu!!
p.s. þú kaupir kannski eitt par af havaianas handa mér, verið að selja þetta hérna á 300 danskar, 3000 íslenskar...úfffpúff...;)
|
| Hjördís amma: 02.05.2006 |
ég er með þér á slóðum Inka
|
Þetta er stórkostlegt ævintýri sem þú ert að taka þátt í, undur heims í Perú, þetta eru slóðir sem mig hefur lengi langað til en hef ekki látið verða af, því hef ég mikla ánægju af því að ferðast í huganum með þér. Elsku Hjördís mín , haltu áfram að læra og njóta lífsins. Kveðja frá ömmu sem elskar þig. Vorið er komið á Íslandi -dásamlegt .
|
| Agusta Birna Arnadottir: 27.04.2006 |
Kveðja frá Gustu, vinkonu ommu
|
Thetta eru nu sma skilabodherna fra eyjunni i nordri. Allt gott ad fretta, sumarid ad koma, vonandi. Framundan er ferdasumar, Verd i Strassborg i 2vikur i mai og juni, Spani 2 vikur i juni og sidan fer eg i gönguferd til Bulgariu i september, svo thad er mikid ad hlakka til, gaman ad ferdasogunni thinni, ekkert sma aevintyri! Alltu afram ad njota thin og hafdu thad gott Gusta.
|
| amma Hjördís: 18.04.2006 |
tilbúin í ævintýrið
|
Ég var í kyrrðinni í Skálholti um bænadagana og upplifði mikið ævintýri, ævintýri lífsins það að njóta frelsisins sem felst í að trúa. Trúin á kærleikann´sem er í hverri manneskju og hve lífið er dásamlegt. Frelsið í þögninni innan um 25 manneskjur sem allar eru á sama báti í kyrrðinni. Heklan, Eyjafjallajökull og Tindfjöllin blöstu við snævi þakin í sólinni, ég fór í göngutúr á hverjum degi og hugsaði til þín í annarri heimsálfu og að njóta útsýnis go þeirri fegurð sem þú kannt svo vel að njóta. Ég hlakka til að hitta þig og ég var að koma úr bólusetningunni ásamt fjölskyldunni svo við erum tilbúin í ævintýraferðina. Ég fékk ekki heldu neitt páskaegg. Elska þig - amma
|
| Eric: 17.04.2006 |
Kveðja frá Frakklandi...
|
Þúsund kossar og ástarkveðjur frá Frakkandi... vorið komið, hugsa oft til þín. Knús til þín... Eric
|
| pabbi: 16.04.2006 |
Sex vikur og sex sprautur
|
Hæ hæ svítí og gleðilega páska.
Sennilega ekki mikið um páskaegg og stórar steikur þar sem þú ert að þvælast. Annars var einhver bakari að bulla með það í fréttum að besta súkkulaðið kæmi frá Bólivíu. Handunnið af Indíánum.
Nú eru sléttar sex vikur þar til við hittum þig í Buenos Aires. Fyrsti og líklega erfiðasti áfangi ferðarinnar hefst samt á þriðjudaginn en þá verðum við að lifa af fimm til sex öglý sprautur . . . takk fyrir. Gula, lifrabólga, taugaveiki og ég man ekki hvað og hvað. Komumst vonandi í gegnum það.
Ástarkveðjur að heiman
pabbi
|
| Íslenska mamman: 15.04.2006 |
Ég væri til í að vera með þér!
|
Þetta er algjört ævintýri og ég væri sko til í að vera með þér, þrátt fyrir þessa vegi.
Gangi þér vel á Inca slóðum, með indjánunum. Knús og kossar frá okkur heima.
(Við erum lögð af stað í huganum.)
|
| Berglind littla frænka þín:D:*: 04.04.2006 |
Hæ sæta frænka mín :D
|
gaman að skoða þessa síðu og lesa bloggin þín.. amma er núna í heimsókn í mat með ívari og mömmu þinni og pabba hjá okkur og amma sagði mer frá þessari síðu .. hafði bara ekki grænan hehe.. en ég er að fara til flórída núna á fimmtudaginn.. (eftir 2 daga) ;) hlakkar ekkert smá mikið til :D :D en ég ætlaði bara að skila hveðju til þín ástin mín.. ég sakna þín ógessslega mikið og elska þig :D:D:*:* þín littla frænka .. , berglind j
|
| Hörn og Hjördís: 01.04.2006 |
Akureyri
|
nú er aldeilis lag á henni ömmu þinni skrapp til Akureyrar með Hörn yfir helgina. Dólum okkur um torg og stræti og erum með skíðin í farteskinu, dásamleg veður allt á kafi í snjó og grýlukertin hanga yfir okkur og biðja að heilsa þér. Kveðja frá Hörn opg ömmu sem elskar litla töffarann sinn
|
| Ólöf fellasmellur: 31.03.2006 |
|
Hjördis mín hvenar faum vid a felli tig aftur Gudni vonast eftir ter hef verid ad fylgjast med sidunni tinni hun er frabær bæo Ólöf
|
| Unnur: 30.03.2006 |
Axlabönd?
|
Hæ sæta mín:) Djöfull sé ég þig fyrir mér labbandi um með axlabönd:) Litli töffarinn þinn:) hehe, héðan er allt gott að frétta. Er loksins búin að losa mig við lungnabólguna, sem betur fer. Og er farin að vinna aftur:) í kvöld er maður svo að fara að horfa á nokkrar stelpur labba um á svo miklu sem engu í Ungfrú Reykjavík... hehe, vildi óska að þú værir hér og við mundum bara fara á kaffihús eða eitthvað:) hehe, miss u baby og passaðu þig að fá ekki axlabandafar:) hehe, væri til í að sjá það:) Kv. Unnur
|
| Fjölsk. Holtagerði 13: 29.03.2006 |
Hæ Hjördís.
|
Hæ Hjördís mín! Við förum inn á síðuna þína reglulega og gaman að fylgjast með þér og frábært hvað þú ert dugleg að blogga. Söknuðum þín í fjölskyldukaffi á sunnudaginn, og reyndar pabba þíns og Ívars líka því Ívar var með flensu. Hafðu það gott og gangi þér vel:) Kær kveðja, Anna, Bjössi, Elísabet og Eva.
|
| svava: 29.03.2006 |
dísa skvísa
|
Alltaf jafn gaman að fylgjasr með þér skvís
missi alltaf af þér á msn inu :( anyway þangað til næst góða skemmtun og take care ;)
Ps Axlabönd eru bara smart fer að koma inn aftur þú ert bara á undan tískunni :)
|
| Hjördis Senor: 27.03.2006 |
Morgunblaðið fyrir góða penna
|
ástkær.
Ég legg til að þú skrifir ferðapistla í Morgunblaðið, ég get komið þér í samband. Ég held að þeir greiði fyrir ferðapistlana.
Hlakkaa til að hitta þig í BA
|
| Gudni: 24.03.2006 |
ja-hjerna
|
Þú att hros skilið fyrir þessa síðu þína, hrein snilld !!
ertu nokkurð farin að hugsa fyrir alvöru lífsins, í juni, juli, og agúst ??
gangi þer sem allra best
|
| Erna Steinsdóttir: 23.03.2006 |
|
Góða skemmtun og gangi þér vel. Ég á systur sem einu sinni var að ferðast á þessum slóðum.
Ég er vinkona Hjördísar ömmu þinnar
|
| Mamma: 22.03.2006 |
Bið að heilsa Buenos Aires
|
Góða ferð til Argentínu. Ég hlakka til að hitta þig í Buenos Aires eftir rúmlega 2 mánuði. Er líka að æfa spænskuna mína.
te amo mucho, mi hija.
Madre de Álftanes
|
| Guðlaug Gísladóttir: 21.03.2006 |
Góðar kveðjur
|
Blessuð og sæl flakkari!
Mikið er gaman að sjá hvað gengur vel hjá þér og þú nýtur lífsins í sólinni og hitanum. Gangi þér allt í haginn! Allt gott að frétta af Fróni.
Bestu kveðjur úr Hryggjarselinu
|
| Hjördís amma: 21.03.2006 |
Hinsegin dagar í Regnboganum
|
Nú er Lísa í Undralandi fjarri góðu gamni. Það eru Hinsegin dagar í Regnboganum og ég er búin að sjá tvær myndir.Proteus er um ungan hirðingja sem er hnepptur í þrældóm á Robben-eyju(þar sem Nelson Mandela sat sem lengst í fangelsi) Myndin er byggð á sönnum atburði ´´i Suður Afríku í kring um 1725. Þar hittir hirðinginn hollenskan sjóliða sem hefur hlotið dóm fyrir "saurlifnað" sódomíu og þeir verða elskendur. Ástin sú reynist þeim afdrifarík. Þetta er ögrandi og ástíðufullt listaverk um ólöglegar ástir og ólöglegt samneyti kynþáttanna. Að mínu mati er þessi mynd listaverk um sögu samkynhneigðra ást sem fléttast saman og öðlast víddir handan við stað og stund. Protea er þjóðarblóm S-Afríku.Mér fannst gaman að rifja upp veru mína sem túrhests í S-Afríku og ferðina til Robben eyju.
Myndin Síðari dagar sem segir frá Kristjáni miklum gleðipinna og djammbolta og telur sig vera að njóta þess besta sem lífið hefur upp á að bjóða með stanslausum paríum, drykkju og nýjum bólfélaga í hverri viku. Þáttaskil verður í lífi hans þegar Aron 19 ára mormóni og trúboði flytur í næstu íbúð. Kristján gerir hostur sínar grænar fyrir Aroni sem á erftiitt meða að standast þenna fallega strák en þykir hann grunnhygginn og kaldur og hafnar honum. Hvorugur er þó ósnortinn eftir þessi kynni.Kristján áttar sig á því að hann þarf að hugsa sinn gang og endurmeta hvað skiftir máli í lífinu. Aroni verður ljóst að hann getur eki lengur flúið eigin samkynhneigð, hann verður að takast á við hana og það miskunnarlausa trúarumhverfi sem hann ólst upp í. Myndin vekur mann til umhugsunar um lífið og tilveruna.Þetta er yndisleg mynd og ég fór sæl út í kuldann.Elsku Hjördís mín ég tók þessar lýsingar upp úr dagskrá hátíðarinnar sem er mjög vönduð. Ég ætla að sjá fleiri myndir. Ég fer ein það hefur engin vina minna áhuga sem er slæmt því þessar myndir vekja til umhugsunar um margbreytileika lífsins og tilverunna. Elska þig og bið Guða að vaka yfir þér og vinum þínum.
Mig langaði til að deila þessu með þér .
|
| Unnur: 20.03.2006 |
Hæ sæta mín
|
Oj, ég var að fara í gegnum allt bloggið sem að ég var ekki búin að lesa og ég trúi ekki að nýja myndavélin þín sé bara horfin!!! Þeir ættu að skammast sín! Á meðan að þú ert í sól og blíðu úti, þá er ég hérna heima með sýkingu í lunga og má ekki einusinni fara út...Mæli ekki með þessu. Ég vona bara að það sé gaman úti, sem að ég er reyndar nokkuð viss um, en ég er samt farin að hlakka meira og meira til að þú komir heim!!! Miss u Alice:)
Ástarkveðja frá Íslandi:)
|
| Hjördís amma: 14.03.2006 |
Nýtt nafn ný tækirfæri
|
Íslandsbanki og 7 dótturfyrirtæki hafa sameinast undir nýju nafni Glitir. Starfsemi bankans er í alþjóðlegu umhverfi með starfsemi í 5 löndum og opnar bráðlega útibú´í Kína og Kanada. Nafnið hentar betur í þessu umhverfi og er ég mjög ánægð með að þeir nota nafn sem á rætur að rekja til Norrænnar goðafræði en í Gylfaginningu segir frá Glitni sem var forseti og sonur Baldurs og Nönnu. Sagan segir að þaðan hafi allir gengið sáttir.Nafnið inniheldur alþjóðlega stafi og er auðvelt í framburði á flestum tungumálum. Ég gleðst yfir því að bankinn minn heitir ekki erl nafni til icebank.group. Glitnir var til sem fjámögnunarfyrirtæki. Elsku Hjördís mín hafðu ekki áhyggjur af krónunum þínum. Ég vorkenni þeim sem sofa ekki um nætur vegna hlutabréfa sem fara lækkandi. Ég sef vel. Vona að þú sért einhverju nær. Elska þig.
|
| Frá Hildi í vinnunni: 10.03.2006 |
Áfram með jafnréttið!
|
Hæ Hjördís
Vona að þú þurfir ekki að slá fleiri á næstunni til að sanna jafnrétti kynjanna. Góður punktur samt. Það var alltaf svo yndislega dramatískt í þessum gömlu "góðu" bíómyndum þegar konurnar slóu karlmennina utan undir þegar þeir fóru yfir strikið í samskiptum. Maður stóð alltaf á öndinni og beið eftir viðbrögðunum. Bara vondu karlarnir, þessir í svörtu fötunum og maður hataði þá alveg, sló til baka, og góði gæinn drap hann, garanterað. Maður vissi hvar maður hafði hlutina þá.
Já, gömlu góðu dagarnir eru löngu horfnir.
|
| hjordis amma: 08.03.2006 |
horfin myndavel :(
|
oj bara hvað þeir eru leiðinlegir en við erum heppin að þú ert BARA RÆND Vertu dugleg að hala myndir inn á netið á nýju myndavélinni. Ég þyrfti að vera með ykkur þa þyrðu þeir ekki í okkur-eða hvað heldur þú? amma elskar flökkustelpuna sína
|
| Mamma: 07.03.2006 |
Frá mömmu
|
ég sendi þér smá nótu á gmailinn þinn:
(hjordis.gudm@gmail.com)
kveðja, mamma
|
| AFI EGILL: 06.03.2006 |
ElSKU dísa okkar
|
Okkur líður öllum vel.Við höfum fylgst með ferðum þínum á netinu.Við erum vonandi búin að læra það vel á tölfuna að þetta komist ti þín.Guð veri með þér á þinni ævintýra ferð.
Kær kveðja afi og amma
|
| Hjördís Jensdóttir: 02.03.2006 |
vildi að ég væri..
|
ég vildi að ég væri komin til þín með bakpokann minn og druslaði mér í strætó út á ströndina og buslaði í sjónum með þér. Kannske kem ég með þér á næsta ´ri þá verð ég hætt að vinna. Amma elskar þig.
|
| Daniel: 28.02.2006 |
Daniel ARG
|
Hola como estas hace tiempo que no Se de ti , simplemente si paso por aqui es para saludarte y desearte suerte en tus cosas, espero que sigas bien y volver a encontrarte alguna ves otra Ves suerte.
TKM.
DANIEL
Desde ARG.AMERIKE SUR
|
| steinunn: 25.02.2006 |
|
kveðja frá Felli
sakna þín ógeðslega mikið!!!!!
|
| ólöf karitas: 25.02.2006 |
heppinn
|
Hæ, Vá hvað ég öfunda þig.....Mér langar svo aftur út.. ég var skiptinemi í SP. Floripa er æði....hvernig var carnavalið
kv. 'Olöf
|
| Murilo: 21.02.2006 |
|
Alice... Aloka!!! soh se divertindo neh... arrasa fia... já estou morrendo de vontade de te ver denovo... bjus da bixa!!!
|
| Kristin Helgadottir: 19.02.2006 |
HALLO FRÆNKA!
|
Halló ég er hún frænka þín
(dóttir Þóru og Helga afabróður þíns)
Hitti ömmu þína áðan og hún sagði mér frá síðunni þonni.
Rosalega líst mér vel á þetta ævintýri hjá þér,
vona að þér gangi vel í ferðinni og auðvitað að þú komir heil heim aftur :)
kveðja
kristinh
|
| Hjördís Jensdóttir: 14.02.2006 |
Gott hjá þér
|
mikið er gaman að fyljgast með og sjá myndir af vinum þínum hefði viljað sjá myndir af mæ og pæ eða hvað? Amma elskar þig og vildi gjarnan vera með þér.Það kemur að því.
|
| HOLA AQUI HECTOR.D.ROSALES: 13.02.2006 |
HOLA COMO ESTAS HJORDIS
|
HOLA COMO ESTAS ? YO AQUI PREGUNTANDOME PUES POR TI MI NIÑA! QUE HACES DE TUS DIAS Y SEMANAS ? QUE HACES DE TI ? ESPERO TENER TUS NOTICIAS .
SELASORLEINAD@HOTMAIL.COM
|
| Summi: 09.02.2006 |
WOOo
|
ertu búin að hössla einhverja spánverja nýlega? hehehehe djók er ekki stuð í húsinu víúóvívívöö love u, summi
|
| Gudrun: 08.02.2006 |
knús að heiman
|
Sæl Hjördís mín. Mikið er gott og gaman að fylgjast með þér á netinu og nú ætla ég að notfæra mér fínheitin =) Það er allt gott að frétta héðan og miklar breytingar frammundan hjá mér jafnvel ég hef verið að bræða með mér að skipta um vinnu. En ekkert að hreinu ennþa.
Ég öfunda þig af þessu fína lífi þínu en ég er of mikil steingeit til að geta slept svona tökunum á öllu. Jörðin er nauðsinleg fyrir mig, Sem sagt vita svona nokkurnvegin hvað gersit næst. farðu samt varlega eins og alltaf og halltu áfram að brosa fallega brosinu þínu.
|
| Hjördís Jensdóttir: 07.02.2006 |
amma fylgist með þér
|
Alltaf jafn gaman að fylgjast með þér Amma elskar þig
|
| Ólöf Fellasmellur: 03.02.2006 |
Dísa
|
Fylgist með með síduni
tinni
|
| mamma: 03.02.2006 |
Ertu æðisleg?
|
Þú ert alveg frábær, getur allt bara ef þú brosir. Enda er brosið þitt æðislegt. Hafðu það sem allra best Te amo mucho :o)
|
| vignir: 02.02.2006 |
|
hæ þekki þig ekki neitt, ársæll frændi minn sagði mér frá þér, sá sem að hitti þig á kúbu ! líst vel á það sem að þú ert að gera, living the dream ! ! ! have a nice one
einn sem hefur gaman að ferðast
|
| ola: 31.01.2006 |
Daniel
|
Hola como estas !!!!!! espero que me escribas !!!!!!!! yo aqui viviendo lo que es la temporada !!!! Bueno che espero que des señales de vida quiero saber de ti y no se lo que escribres , es decir tu idioma por eso escribima ok?
|
| Hjördís Jensdóttir: 30.01.2006 |
amma ferðast með þér í huganum
|
mer finnst þetta svo spennandi land ég hélt að þú stoppaðir lengur þarna. En það er gaman að fylgjast með þér og alltaf jafngaman að lesa dagbókina þín. Allt gott að frétta af mér, núna er partýtíð hjá ömmu 3 kvöld í síðustu viku og fjögur í þessari. Elska þig
|
| Ól0f: 27.01.2006 |
|
Var ad skoda heimasiduna tina fylgist med ter hafdu tad gott kvedja Ólof Fellasmellur
|
| Unnur - Queen of Hearts :): 24.01.2006 |
Hola Alice en pais de maravilhas
|
Hæ mín sæta.
Ég verð að segja að ég er alltaf að skoða síðuna þína og það er svo gaman að geta ferðast með þér. Ég sakna þín svo mikið og ég hlakka ekki til að koma heim.. Engin Hjördís, Alex eða Enrique....Hvað á maður að gera? Ég verð bara að bíða eftir því að Dísa mín kemur heim, og þann dag mun ég vera úti á flugvelli, með fjólubláa rós í munninum;) Just for u baby!! Sakna þín og hlakka til að sjá þig!!
Love U,
Unnur
|
| eric: 24.01.2006 |
Æðisleg síða
|
Hjördís mín !
Gott að geta fylgst með þér, gangi þér vel í ferðalögum. Þegar þú kemur heim skrifarðu kannski bók sem heitir : "Hin undersamlega rejse Hjördísar um Suður Ameriku, gangi þér vel, ástin mín...
Eric
|
| Sigga: 24.01.2006 |
:)
|
olá prima querida!!!
Queria te dizer que te amo muito e to morrendo de saudades!!!
Cuidado aí no país das maravilhas....
Beijosssss!!!!!!!!!!!! :*
p.s. Drekktu smá cachaca fyrir mig prima og kannski einn antartica í brasil;)
|
| Elísabet Frænka: 23.01.2006 |
|
Hæ gaman að fylgjast með þér og vertu dugleg að skrifa og taka myndir!! Mamma, pabbi og Eva biðja að heilsa :D
|
| Sigríður Ása: 17.01.2006 |
Noh!
|
Hey! Þetta er rosaleg síða hjá þér, er nú þegar aðdáandi. En ég veit nú gasalega lítið um ferðir þínar undaðfarið, þannig að ég verð víst bara að fylgjast með á öndvegissíðu þessarri. Gangi þér vel með allt og góða skemmtun,
kærlig hilsen, Sigríður Ása í Köbenhavn. (www.blog.central.is/sigridurasa)
|
| Hjördís Jensdóttir: 16.01.2006 |
kveðja frá ömmu
|
Fínt að "heyra" frá þér og gaman að vita að þú ert ánægð. Ég er enn að hlusta á kvöldin eftir því að einhver stingi lykli í skrána. Hér er allt fullt af sjó og mér finnst það gaman, sendi þér snjómyndir frá Fornalundi svo þú getir sýnt vinum þínum á hlýrabolunum fegurðina sem fylgi snjónum. Elska þig
|
| Bojan: 15.01.2006 |
Umhverfissvið fitusprengd!
|
Det var ett jävla skrivande på isländska här. Res lite för mig också så ses vi i Stockholm i sommar! You can take the car from CPH, it's just a two-hour drive....:-)
And please, rock the world baby.
/B
|
| Malla: 14.01.2006 |
Hjördís
|
kær kveðja vina mín gaman að fretta af þér.
|
| Joi kalli: 13.01.2006 |
Beibs...
|
langaði svo að koma að segja bæ við þig .. en komst ekki.. en ég vona að þú skemmtir þér geggggjað vel.. og kom með góðar sögur heim... endilega segði HÆ við mig á msn þegar þú hefur tíma.. Luv you XxX þinn jói kalli
|
| Gummi: 13.01.2006 |
ommmg
|
Frábært að allt gengur vel so far, miss u babe, og hlakka til að sjá þig sem fyrst hvort sem ég komist til þín í mars eða í júní þegar þú kemur heim. :* sugarkisses from iceland og ekki þarf að minna þig á að skemmta þér =)
|
| Hildur: 12.01.2006 |
Hæ sæta skvís!
|
Geðveik síða hjá þér, ég held nú að hún eigi eftir að stytta manni stundir í vetur. Ég fékk alveg fiðring í magann og tár í augun mig langar svo að vera með þér á Pangea að horfa á Beverly. En hafðu það nú gott stóra systir ;)
Hildur
|
| svava: 12.01.2006 |
Söknum þín !!!
|
jæja skvís vertu nú dugleg að blogga og segja frá og setja inn myndir.. farðu varlega og passaðu þig á öllu skrýtna fólkinu :) við söknum þin sárt í vinnunni og allir biðja að heilsa :)
|
| Gulla, Viðar og strákarnir: 11.01.2006 |
Gaman að allt gengur vel!
|
Frábært að heyra að þú sért ánægð og njótir lífsins á hlírabol í sandölum! Við erum bara í flís hér á Fróni! Hafðu það sem allra best, allt gott að frétta af okkur.
|
| Mamma: 11.01.2006 |
Como estás? Hace buen tiempo, si?
|
Gott að ferðalagið suðureftir gekk vel :o)
Si, mi hija está contenta y feliz, yo estoy contenta y feliz tambien.
Te amo mucho
Su madre
|
| Ívar: 11.01.2006 |
Hæ Didda systir
|
HÆ, Gott að þú sért komin til Brazil :D hafðu það sem allra best
Þinn bróðir sem elskar þig útaf lífinu ***Kiss***
Ívar
Ps. Bið að heilsa fjölskyldunni úti :D
|
| hjördís Jensdóttir: 11.01.2006 |
Amma elskar þig
|
Ég er með þér í huganum og mikið var gaman að fá fréttir og þær svona skemmtilegar.Ég bið Guð að vaka yfir þér
|
| Pabbi: 10.01.2006 |
Hæ hæ svítí pæ
|
Þú verður líklega komin til Buenos Aires þegar þú rekur augun í þessa kveðju. Við sem heima sitjum ferðumst bara með þér í huganum og á þessum síðum. Ástarkveðja pabbi
|